Ætlar skúli að kaupa þrotabú wow air? sveinn andri: „no comment“

Skúli Mogensen stefnir á að endurvekja WOW air sem tekið var til gjaldþrotaskipta í síðustu viku. Á vef Fréttablaðsins er greint frá því að Skúli og aðrir fyrrverandi lykilstarfsmenn leiti nú fjármögnunar uppá 4,8 milljarða króna.

Í fjárfestingarkynningu sem dagsett er í gær  kemur fram að félagið sem enn hefur ekki fengið nafn stefni á að reka harða lággjaldastefnu í líkingu við þá sem WOW air hafi rekið á fyrstu árum sínum.

Þá segir einnig í kynningunni að félagið hafi sótt um flugrekstrarleyfi til að reka fimm Airbus-farþegaþotur. Þá stefnir hið nýja félag á að fljúga til þrettán áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku, ekki ósvipað því leiðarkerfi sem WOW air var með á sínum tíma. Áfangastaðirnir yrðu þá London, París, Amsterdam, Berlín, Kaupmannahöfn, Dyflinni, Tenerife, Alicante, Frankfurt og Barcelona í Evrópu. Þá yrði flogið til New York, Baltimore og Boston í Bandaríkjunum.

Skúli og aðrir lykilstarfsmenn myndu eiga 51 prósent í hinu nýja félagi.

Sveinn Andri Sveinsson er skiptastjóri þrotabús WOW air. Í samtali við Hringbraut, um hvort nýtt félag Skúla Mogensen stæði í samningaviðræðum við þrotabúið um kaup á eignum þess sagði Sveinn Andri að hann gæti ekki tjáð sig um málið á þessu stigi. Sagði Sveinn Andri einfaldlega: „No comment“.