Ætlar sér að stórfjölga kennurum

Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra boðar aðgerðir til að auka nýliðun í kennarastétt. Verið er að skoða að gera fimmta árið í kennaranámi að vettvangsnámi.
 

Lilja var gestur Morgunvaktarinnar á Rás 1 þar sem farið var yfir menntamálin. Útkoma íslenskra nemenda í Pisa könnun sem sé verri en hjá annarra norrænna nemenda. Menntamálatyfirvöld þurfi að sýna fram á öll tækifærin sem felist í því að vera með öflugt menntakerfi, hún vísar til Norðurlandanna í þeim efnum.

„Þau eru að leggja mjög mikla árherslu á allt sem tengist rannsóknum og þróun vegna þess að þau vilja búa til þannig umgjörð að störf sem eru mjög virðisaukandi verði til og þau eru líka að hugsa um; hvernig höldum við í unga fólkið okkar. Það er alþjóðlegur vinnumarkaður,“ sagði menntamálaráðherra.

 Lilja var spurð út í fjölda skýrslna sem gerðar hafi verið um skólamál og hvort ekki væri kominn tími á aðgerðir.

„Jú, það er rétt að það er búið að kortleggja stöðuna. Við sjáum það til að myna varðandi þann vanda sem blasir við okkur í kennarastéttinni, nýliðun, þar erum við strax búin að setja á laggirnar verkefnastjórn og hún er með tillögur sem hún er að vinna með, til að mynda varðandi kennaranámið, að gera 5. árið að vettvangsnámi. Ég er í mjög góðu sambandi við menntavísindasvið og Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri um hvernig við förum í þessa aðgerð,“ sagði ráðherrann á Rás 1 í morgun.