Veiga Grétarsdóttir ætlar sér að verða fyrsta konan til að róa rangsælis umhverfis Ísland á Kajak.
Í bígerð er heimildarmynd um Veigu sem nefnist Á móti straumnum eða á ensku Against The Current og er ætluð fyrir erlendan markað ekki síður en hér innanlands. Myndina vinna þeir Óskar Páll Sveinsson og Pétur Einarsson.
Fjögur ár eru síðan Veiga lét leiðrétta kyn sitt eða þegar hún var 38 ára. Leiðangurinn er táknrænn fyrir þær breytingar sem orðið hafa á lífi Veigu sem reyndi tvisvar að taka eigið líf sem karlmaður svo óbærilegt var lífið orðið. Hún mun safna fé í leiðangrinum í sumar fyrir Pieta samtökin sem vinna gegn sjálfsvígum. Linda Blöndal talar við Veigu í þættinum 21 í gærkvöld.
Sýnihorn úr þættinum má sjá hér: