Ekki á förum frá swansea í sumar

Gylfi Þór Sigurðsson leikmaður Swansea er gestur okkar í sjónvarpsþætti 433.is á Hringbraut í kvöld, en þátturinn er frumsýndur klukklan 21.15. Þar með hefur þátturinn heimsótt alla íslensku leikmennina í tveimur efstu deildum enska fótboltans; Aron Einar, Eið Smára, Kára Árna, Jóhann Berg og Gylfa Þór. 


Í þættinum í kvöld er Gylfi sóttur heim á Liberty völlinn, heimavöll Swansea, en hann tekur ríflega 20 þúsund manns í sæti. Swansea er raunar enginn smábær á íslenskan mælikvarða, en þar búa um 240 þúsund manns, litlu færri en íbúar Íslands.


Margt ber á góma í samtalinu við Gylfa Þór í þættinum, en meðal annars sem hann ræðir er að hann hafi ekki áhuga á að yfirgefa Swansea í sumar en hann gekk í raðir félagsins síðasta sumar og hefur spilað vel, skorað mörg falleg mörk og átt fleiri stoðsendingar í leikjum félagsins en nokkur annar leikmaður þess. Meðal annarra viðmælenda þáttarins er Ashley Williams, fyrirliði Swansea.


Þáttinn er hægt að horfa á hér: 


Horfa á klippur úr þættinum hér: