Ætlar að loka fyrir vatn til sumarhússeiganda í kjós vegna deilna um skilgreiningu húss

Eigandi jarðarinnar Þúfukots í Kjósarhreppi er ósáttur við að kona, sem á helmingshlut í sumarbústað á jörðinni, skrái lögheimili sitt þar. Hann segir að skrúfað verði fyrir vatn til sumarhússins.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Þar segir að það sé einkahlutafélagið Dap sem á jörðina. Það leggist alfarið gegn því að hreppurinn heimili að sumarhúsalóð á jörðinni verði breytt í íbúðarhúsalóð en konan hefur óskað eftir því. Í vor óskaði hún eftir að sumarhúsið Nýjakot verði skilgreint sem íbúðarhús til að hún geti átt lögheimili þar.

Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður eiganda Þúfukots, segir í bréfi til Kjósarhrepps að konan hafi flutt lögheimili sitt í Þúfukot en það sé óheimilt og hafi Þjóðskrá verið send beiðni um að afmá skráninguna.

Gunnar segir að breyting á landnotkun myndi hafa mikil áhrif á notkun landsins í kringum lóðina. Á sínum tíma hafi stofnun frístundalóðarinnar verið ólögmæt þar sem hún hafi gengið gegn aðalskipulagi hreppsins. Húsið í Nýjakoti er frá 2007.

Í bréfi Gunnar segir meðal annars að ef samþykkt verði að lóðin verði gerð að íbúðarhúsalóð megi vænta þess að það geti haft ákveðin ruðningsáhrif í för með sér og að fleiri frístundalóðum verði breytt í íbúðarhúsalóðir.

Hann segir jafnframt að ekki sé fyrir hendi samningur um öflun neysluvatns í landi Þúfukots fyrir sumarhúsið og sé öflun neysluvatns því án leyfis landeiganda og verði ekki framlengd að óbreyttu. Segir jafnframt að vatnið verði aftengt á næstu vikum vegna framkvæmda á jörðinni og það sama eigi við um hitaveitu.