Ætla að rannsaka verklag ráðherra sem komu íslandi á gráa listann: „mikilvægt er að draga lærdóm af málinu“

Á fundi Stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar Alþing­is í dag var samþykkt að hefja frum­kvæðis­rann­sókn á verklagi ráðherra. Er það gert vegna ábendinga fram­kvæmda­hóps FATF vegna aðgerða gegn pen­ingaþvætti og fjár­mögn­un hryðju­verka. Þetta kemur fram á vef mbl.is en Jón Stein­dór Valdi­mars­son, þingmaður Viðreisn­ar og flutn­ings­maður til­lög­unn­ar staðfesti þetta. Var tillagan tekin til efnismeðferðar nú í morgun. Jón Steindór sagði:

 „Þetta var samþykkt og það var samstaða í nefnd­inni um að ráðast í þetta og það er mjög gott.“

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata sagði við vef mbl.is á mánudaginn:

 „Það ligg­ur fyr­ir að við erum kom­in á grá­an lista FATF og höf­um verið að fá at­huga­semd­ir frá þess­ari nefnd frá ár­inu 2006 og hug­ur nefnd­ar­inn­ar stend­ur til að skoða hvernig það gat gerst að við erum kom­in á þenn­an gráa lista og hvernig verklag ráðherra hefði mátt bet­ur fara svo við get­um lært af þessu í framtíðinni.“

Markmið með rannsókninni er að leiða í ljós hvaða brotalamir megi mögulega finna í vinnubrögðum þeirra ráðherra, ráðuneyta og stofnana sem bera ábyrgð á samskiptum við FATF. Í tillögunni segir:

 „Mik­il­vægt er að draga lær­dóm af mál­inu og greina hvað fór úr­skeiðis og hverj­ir bera ábyrgð á því. Aðeins þannig  er hægt að draga úr lík­um þess að ágall­ar í verklagi, ábyrgð, úr­vinnslu og eft­ir­fylgni í mál­um af þessu tagi geti end­ur­tekið sig.“ Þá segir jafnframt að lokinni gagnavinnslu muni frekari rannsókn hefjast en stefnt er að því að ljúka vinnu á næstu mánuðum. Í tillögunni segir:

„Lagt er til að SEN afli allra þeirra gagna sem nefnd­in tel­ur nauðsyn­leg til þess að rann­saka málið og kalla til sín alla þá gesti sem hún tel­ur að geti varpað ljósi á mála­vöxtu. Það gild­ir um ráðherra, ráðuneyti, stofn­an­ir og aðra sem komið hafa að mál­inu með ein­hverj­um hætti.“