Orkuveita Reykjavíkur ætlar sér að verja 102 milljörðum króna í viðhalds- og nýfjárfestingar til ársins 2025 samkvæmt nýrri fjárhagsspá sem var samþykkt af stjórn Orkuveitunnar í dag.
Í tilkynningu frá Orkuveitunni Reykjavíkur segir fyrirtækið að fjárhagur þess sé traustur og engra stórra breytinga sé að vænta í tekjum eða gjöldum á næstu árum. Spáin gildir einnig fyrir dótturfélög Orkuveitunnar, Veitur, Orku náttúrunnar og Gagnaveitu Reykjavíkur. Orkuveitan ætlar sér til dæmis að uppfæra alla orkumæla á vegum Veitna, en það er stærsta einstaka fjárfestingarverkefnið samkvæmt spánni. Einnig gerir fyrirtækið ráð fyrir byggingu nýrrar aðveitustöðvar rafmagns sem getur tengt stór farþegaskip við rafmagn þegar þau leggjast að í Sundahöfn. Er það stórt skref til að minnka kolefnisspor skipanna, þar sem í dag eru þau að brenna olíu til að framleiða rafmagn fyrir skipið sjálft. Ljósleiðaravæðingarverkefni fyrirtækisins mun einnig halda áfram og á að ljúka við lagningu ljósleiðara til allra heimila í þéttbýli Árborgar, Reykjanesbæjar og Voga á Vatnsleysuströnd.
Orkuveitan gerir ráð fyrir því að nettóskuldir þess lækki um allt að 35 milljarða króna á tímabilinu. Þá verði arðgreiðslur til eigenda um 15 milljarðar króna.