Æsti alla upp og glotti sjálfur

Ég ólst upp í stórri fjölskyldu. Það voru amma og afi, móðursystir, mamma og svo systur mínar tvær. Þegar ég var sjö ára bættist Helgi við er móðursystir mín giftist honum. Það voru oft fjörugar umræður við eldhúsborðið, ég sat alltaf og hlustaði. Þegar Helgi bættist í hópinn jókst fjörið til muna, hann deildi ekki skoðunum með móður minni en áður en að hann kom inn í fjölskylduna þá var það alltaf mamma sem átti síðasta orðið í öllum rökræðum. Helgi hafði undarlegt lag á að æsa mömmu upp, hann var rökfastur en skipti aldrei skapi, oft fór það svo að mamma rauk út og skellti hurðum. Helgi sat þá eftir og glotti.

Þannig leið tíminn. Þar til að kom að kosningum. Á kosningadaginn fóru mamma og Helgi á fjölmennan kosningafund. Þegar mamma kom til baka var hún í afar góðu skapi, sagðist aldrei hafa skemmt sér jafn vel á kosningafundi.  Hún sagði að hún hefði fylgt Helga eftir þar sem að hann rökræddi við fólk úr öllum flokkum og var ekki sammála neinum.  Og alltaf tókst honum að gera alla brjálaða en glotti bara sjálfur. Mamma og Helgi rökræddu aldrei eftir þetta, mamma hafði lært sína lexíu.

Málið var að Helgi var stríðinn með afbrigðum og ekkert fannst honum skemmtilegra en að stríða fólki með eldheitar pólitískar skoðanir.  Þannig fólk æsist auðveldlega upp og þegar maður verður æstur minnkar dómgreindin hratt og hverfur jafnvel. Mér verður oft hugsað til Helga þegar ég les pistla eftir einn ágætan þingmann.  Hann er sérlega laginn við að æsa fólk upp. Sjálfur hef ég nokkrum sinnum verið kominn vel á veg með andsvör við skrifum hans en sem betur fer alltaf tekist á lokametrunum að forða mér frá að falla í gildru hans. Nú les ég skrif hans og skemmti mér konunglega, ekki það að ég sé sammála honum, það er ég nánast aldrei, en mig grunar að hann sitji og lesi viðbrögðin og hlæi vel og innilega líkt og ég geri.

En hvað varðar Helga sem er giftur frænku minni, þá er hann einn vandaðasti maður sem ég hef kynnst, þrátt fyrir stríðnina. Mig grunar að þingmaðurinn stríðni sé ekki svo slæmur heldur.