Ærdauðinn í ár 120% meiri en í fyrra

Ærdauðinn það sem af er sumri er 120% meiri en á sama tímabili í fyrra samkvæmt könnun sem Landssamband sauðfjárbænda hefur gert í samvinnu við Matvælastofnun.

Alls hafa nú 233 bændur svarað könnuninni og að því er fram kemur í svörum þeirra hafa nú aalls 2,741 ær drepist samanborið við 1,242 ær á síðasta ári, en helmingur ánna  drapst fyrir burð í vor.

Ástandsins hefur orðið vart um allt land og virðist óháður gæðum heyja og fóðurbætisgjöf.

Unnið veerður áfram a rannsóknum á ástæðum þessa mikla fjárdauða, en engin einhlýt skýring liggur enn fyrir á honum.