Edda Sif Sigurðardóttir, dóttir Sigurðar G. Guðjónssonar hæstaréttarlögmanns, er mjög ósátt við föður sinn eftir færslu hans um mál fótboltamannsins Kolbeins Sigþórssonar á Facebook í gær.
Edda Sif Sigurðardóttir umrædd dóttir Sigurðar, skrifar ummæli við færslu föður sín og segir meðal annars færsluna ekki vera í takt við þann mann sem hann hafi að geyma.
„Æj pabbi þessi færsla er hvorki þér né málstað Kolbeins til framdráttar,“ hefur Edda Sif mál sitt.
„Stelpupabbinn sem hefur alla tíð hvatt okkur systur áfram, við séum alveg jafnar strákunum og kyn okkar komi hvergi málinu við,“ skrifar Edda Sif.
„Hvað kemur það málinu við hverja stúlkan hefur valið að kyssa, sofa hjá og segja frá? Og trúðu mér það er ekkert óvanalegt að hún leiti ekki til læknis strax - ég er ekki enn farin 15 árum eftir atvik í mínu lífi.“
Verst segir Edda Sif þó vera að skrif föður hennar séu í engum takt við þann mann sem hann hafi að geyma. Þau fái fólk til að álíta hann vera.
„Stelpupabbinn sem alla tíð hefur hvatt okkur systur áfram, við séum alveg jafnar strákunum og kyn okkar komi hvergi málinu við. Ég held þú ættir að endurskoða þessa færslu og setja fram á þann hátt sem sæmir þér,“ skorar Edda Sif á pabba sinn að lokum.