Æfingar falla niður vegna kulda

Óvenju kalt hefur verið í veðri víða um land í dag.

Frost fór í 20 stig á hálendinu í nótt en vitað er um a.m.k. 15 gráðu frost í byggð.

Á Akureyri hefur verið brugðist við kuldabola m.a. með því að fyrirhugaðar íþróttaæfingar falla niður.

Þannig hefur Sundfélagið Óðinn á Akureyri nú tilkynnt að allar æfingar í útilaug falli niður í dag vegna kulda. Frost sé yfir 10 gráðum. Ekki sé ráðlegt og síst fyrir börn að stunda æfingar í svo miklum kulda.