Æfingagjöld: 50% verðmunur

Helmings verðmunur er á hæstu og lægst æfingagjöldunum hjá knattspyrnufélögum landsins samkvæmt nýrri verðlagskönnun verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands.

Könnunin tekur til æfingagjalda í knattspyrnu hjá 16 íþróttafélögum víðsvegar um landið. Borin voru saman æfingargjöld hjá 4. og 6. flokki félaganna. Í fyrrnefnda flokknum var dýrast að æfa hjá Breiðabliki en hjá þeim kostar mánuðurinn 8.250 kr. eða 33.000 kr. fyrir haustönnina sem spannar 4 mánuði. Ódýrast var að æfa hjá ÍR og UMF Selfoss en þar kostar mánuðurinn 5.500 kr. eða 22.000 kr. fyrir 4 mánuði. Verðmunurinn er 50% eða 11.000 kr.  

Í síðarnefnda flokknum var dýrast að æfa hjá Breiðabliki en þar kostar mánuðurinn 7.417 kr. eða 29.667 kr. fyrir 4 mánuði. Ódýrast var að æfa hjá KA en þar kostar mánuðurinn 4.667 kr. eða 18.667 kr. Verðmunurinn er 59% eða 11.000 kr.

Gjaldskrá félaganna hefur aðeins staðið í stað hjá tveimur félögum í báðum flokkum, FH og Knattspyrnufélaginu Víkingi. Einnig var sama gjaldskrá fyrir 6. flokk á milli ára hjá Knattspyrnufélaginu Haukum. Önnur félög hafa hækkað gjaldskrána um 2-25%. Hjá 4. flokki var mesta hækkunin hjá Þór Akureyri, úr 20.000 kr. í 25.000 kr. eða um 25%, hjá KA og HK um 13%, hjá Fram um 12% og hjá KR, Gróttu og UMF Selfoss um 10%. Í 6 . flokki var mesta hækkunin hjá Fram, úr 18.667 kr. í 21.667 kr. eða um 16%.