Fjögura daga Brexit viðræðum lauk seint í gær í Brussel.
Stjórnmálaskýrendur náðu tali af oddvitum Evrópusambandsins (ESB) og Stóra-Bretlands að loknum síðasta fundi þeirra á fimmtudagkvöld. Eftir þau samtöl staðhæfa stjórnmálaskýrendur að ágreiningsmál sé enn öll óleyst og að oddvitarnir hafi fátt annað að segja að áfram verði fundað.
Þykja þetta vísbendingar um að nokkurs úrræðaleysis gæti hjá bresku samningamönnunum. Þetta eru mál eins og réttlæti og frelsi og öryggi borgara og frjáls för launafólks.
Rétt er að hafa í huga að þessar fyrstu lotur Brexit samningaviðræðna eru helst um umsamda umgjörð utan um það sem erfiðast verður af öllu að ná samningi um - fríverslunarsamningi milli ESB og Stóra-Bretlands.
Nánar www.openeurope.org.uk