\"Við stöndum okkur ekki vel, það hafa komið athugasemdir um frammistöðuna. Við þurfum að bæta úr þessu og ætlum að gera það,“ segir Ólafur Þór Hauksson, nýsettur héraðssaksóknari.
Þetta kemur fram í samtali við hann á fréttavefnum visir.is í dag, en þar vísar Ólafur til athugasemda sem gerðar hafa verið af Financial Action Task Force sem Ísland er aðili að. Það er alþjóðlegur framkvæmdahópur sem gefur út tilmæli um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Peningaþvættisskrifstofa héraðssaksóknara tekur við tilkynningum á grunni laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Upplýsingarnar eru greindar og miðlað til viðeigandi yfirvalda: \"Starfsemin fluttist yfir í sumar frá embætti ríkislögreglustjóra. Við bættum við tveimur starfsmönnum, Björn Halldórsson verður með skrifstofuna. Skrifstofan var séreining og verður það líka hér hjá embætti ríkissaksóknara, það er gerð rík krafa um það,“ segir Ólafur Þór við vefinn.
Árið 2014 bárust ríkislögreglustjóra 453 peningaþvættistilkynningar frá tilkynningarskyldum aðilum. Samanlagðar fjárhæðir þeirra voru sex milljarðar króna. Árið 2011 voru tilkynningarnar 208, árið 2012 352 og árið 2013 voru þær 491, að því er fram kemur í samantekt á vefnum.
Fjórar tilkynningar frá erlendum peningaþvættisskrifstofum bárust 2014. Þá bárust 27 fyrirspurnir og önnur erindi frá Interpol og Egmont Group. Af fyrrnefndum 453 tilkynningum var 186 miðlað til lögreglu og embættis sérstaks saksóknara. Níu tilkynningar voru sendar til erlendra peningaþvættisskrifstofa. Algengust eru skattabrot og fjársvik, auðgunarbrot og fíkniefnamál.
Í úttekt Financial Action Task Force á vörnum Íslands gegn peningaþvætti árið 2006 var lýst áhyggjum af virkni eftirlits. Ólafur Þór segir þessum alvarlegu athugasemdum ekki hafa verið fylgt nægilega eftir. Það standi til bóta.