Fulltrúar Icelandair og WOW Air eru sammála um að sú lækkun olíuverðs sem verið hefur viðvarandi á undanförnum mánuðum muni skila sér fljótt og vel í ódýrari flugfargjöldum til og frá Íslandi.
Verðhrun á olíu hefur einnig verið að skila sér í lægra verði á pakkaferðum ferðaskrifstofanna, en Tómas Gestsson, framkvæmdastjóri Heimsferða segir í Morgunblaðinu í dag að stofan hafi að meðaltali lækkað verð á haust- og vetrarferðum sínum um 6%. Hann segir að ef olíuverð haldist áfram lágt geti verð á ferðum Heimsferða lækkað enn frekar.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group segir það liggja í augum uppi að lækkandi olíuverð þrýsti verði á flugfarmiðum félagsins niður - og hann óttast ekki að það fár sem verið hefur á mörkuðum erlendis, vegna hlutabréfaóróans og hruns á olíuverði, muni draga eitthvað úr ferðum erlends ferðafólks til Íslands. Lækkandi flugfargjöld og ódýrarara eldsneyti á bíla og skip muni vega þar upp á móti.
Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW Air segir í þessari samantekt Morgunblaðsins að lækkun olíuverðs muni klárlega leiða til lækkunar á flugfargjöldum félagsins enda vegi olíukostnaður þungt í rekstrinum, eða sem nemur nálega þriðjungi hans.