Æ fleiri stórfyrirtæki flýja krónuna

Vel ríflega tíunda hvert fyrirtæki af 300 stærstu fyrirtækjum landsins gera upp í erlendri mynt, þar af 11 sjávarúrvegsfyrirtæki. Samtals er velta þessara stórfyrirtækja á íslenska vísu nálega tvö þúsund milljarðar króna. 

Það hefur mjög færst í vöxt á síðustu árum að fyrirtæki sem eitthvað kveður að í útflutningi hér á landi kjósi að gera upp í annarri mynt en krónu - og þá einkum og sér í lagi evru, eða vel helmingur þeirra, enda fer yfir 70% af útflutningi Íslands til ríkja á meginlandi Evrópu.

Alls gera nú rétt ríflega 300 fyrirtæki upp í erlendri mynt, einkum þau stærstu hér á landi, sem sést best á því að velta þeirra er nærri fjórðungur af heildarveltu íslenskra fyrirtækja, en alls eru yfir 30 þúsund fyrirtæki skráð á Íslandi.

Fyrirtækjum sem gera upp í erlendri mynt hefur fjölgað hratt á undanförnum árum. Þau voru 97 talsins árið 2005 og fjölgaði mikið á árunum þar á eftir. Þau voru 287 á árinu 2011, fækkaði lítillega árið 2012 en fóru yfir 300 á síðasta ári.

Í hópi þessara fyrirtækja eru Actavis, Eimskip, CCP og öll stærstu sjávarútvegsfyrirttæki sem að jafnaði hafa valið evruna fram yfir íslenska krónu.

Að því er fram kemur á vef Samtaka atvinnulífsins er meginástæðan fyrir því að stóru fyrirtækin velja í auknum mæli aðra mynt en þá íslensku að með þeim hætti lágmarka þau sveiflur í rekstri sínum og geta þannig bætt alla áætlanagerð sína, en þess utan telji stjórnendur stórra útflutningsfyrirtækja skynsamlegra að gera upp í sinni helstu tekjumynt.