Æ fleiri Íslendingar sækja sér endurmenntun og raunar símenntun af öllu tagi, enda er vinnumarkaðurinn hér á landi orðinn miklu kvikari og breytilegri en var á árum áður.
Þetta kemur gjörla fram í fræðsluþætti um starfsemi Promennt í kvöld, eins helsta og reynslumsta endurmenntunarfyrirtækis landsins sem gert hefur þúsundum landsmanna kleift að skipta um starfsvettvang, ellegar koma sér fyrir í betur launaðri vinnu en þeir höfðu áður þekkt.
Í þættinum kynnast áhorfendur fjölda reynslusagna fólks sem skoraði sjálft sig á hólm og byrjaði nám hjá Promennt sem að lokum skilaði því í draumastarfið, en glöggt dæmi um það er saga fiskvinnslukonunnar Jóhönnu Regínu Aðalbjörnsdóttur frá Þórshöfn sem yfirvann athyglisbrest sinn og námshræðslu og endaði sem sérfræðingur hjá Opnum kerfum eftir nokkuð strangt og langt námskeið hjá Promennt. Hún trúir því vart enn hvað hún stóð sig vel í náminu, en þakkar líka starfsfólki Promennt fyrir liðlegheitin og sveigjanleikann sem það sýndi henni, þriggja barna móðurinni og sjómannskonunni, á meðan á náminu stóð.
Við heyrum líka söguna af smiðnum sem söðlaði um og gerðist tæknimaður og framhaldssmenntaðri konunni sem langaði að stofna sitt eigið fyrirtæki og gerði það loksins í krafti sérþekkingar Promennt - og loks kynnast áhorfendum viðhorfum helstu stjórnenda fræðslufyrirtækisins til endur- og símenntunar og hvaða breytingum hún mun taka á næstu árum.
Promennt-þátturinn byrjar klukkan 21:30 í kvöld.