Æ fleiri nýta sér vigtarráðgjöf

Æ fleiri Íslendingar nýta sér vigtarráðgjöf til að bæta mataræði sitt og koma sér í kjörþyngd, en námskeið þar sem fólki er kennt að vigta ofan í sig matinn hafa verið haldin um árabil hér á landi.


Sóley Birgisdóttir lýðheilsufræðingur er meðal gesta heilsu- og útivistarþáttarins Lífsstíls í kvöld og þar leiðir hún áhorfendur í allan sannleika um vigarráðgjöf og hvað fólk græðir á að nýta sér hana. Hún segir mjög algengt að fólk missi tök á mataræði sínu og hætti að gefa sér tíma í vandað val á þeim matvælum sem það neytir hversdagslega. Með vigtarráðgjöf sé ekki einasta verið að mælast til þess að fólk vigti ofan í sig eðlilega matarskammta sem það neytir reglulega yfir daginn heldur er fólki líka leiðbeint um það hvernig það getur breytt neysluvenjunum sér í hag með því að fækka hitaeiningum en vera alveg jafn satt og kraftmikið og því fannst það vera áður.


Lífsstíll er frumsýndur klukkan 20.00 á Hringbraut í kvöld, en meðal annarra gesta þáttarins er Anna Borg sjúkraþjálfari og Sigurður Hafsteinsson golfkennari sem segja frá mikilvægi þess að undirbúa skrokkinn vel fyrir golfsumarið.