Æ fleiri fullorðnir greindir með adhd

Síðastliðin tvö til þrjú ár hefurr fjölgað verulega í hópi fullorðinna sem eru greindir með ADHD, en umræða um málefni fólks með ADHD hefur verið áberandi á síðustu misserum eftir að hafa legið í þagnargildi. ADHD er taugaþroskaröskun sem kemur oftast mjög snemma fram, jafnvel fyrir 7 ára aldurinn - og hefur lengi verið talið að röskunin sé mun algenagri á meðal barna en fullorðinna.

ADHD-röskun getur haft mikil áhrif á daglegt líf, nám og félagslega getu, jafnt á börn sem fullorðna. Það var ekki fyrr en vorið 2013 sem fullorðnir fóru að geta fengið greiningu og þá með tilkomu ADHD teymis sem sett var á laggirnar á Landspítalanum. Engar tölur eru þó til um fjölda einstaklinga með ADHD á Íslandi og segir Þröstur Emilsson, framkvæmdastjóri ADHD samtakanna á Íslandi, að skráningum sé mjög áfátt. Tölur séu til hjá fáum opinberum aðilum og engar tölur séu til um fjölda greininga sem gerðar eru á hverju ári.

Nánar má lesa um þetta í svari sem upplýsingaveitan spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar, birti í kjölfar fyrirspurnar frá lesanda.