Æ fleiri airbnb-íbúðir í sölu

Þóra Birgisdóttir, framkvæmdastjóri fasteignasölunnar Borg, er einn gesta Jóns G. í kvöld. Þau ræða um stöðuna á fasteignamarkaðnum og hvort hann sé að kólna eða loksins að ná jafnvægi. Fram kemur hjá Þóru að fleira ungt fólk (fyrstu kaupendur) komi núna inn á markaðinn og að verktakar leggi meiri áherslu á litlar íbúðir til að mæta þörfum unga fólksins. Þá segir Þóra að sífellt fleiri eigendur Airbnb-íbúða setji þær núna í sölu.