Æ fjölbreyttari veitingahúsaflóra

Í vikulegu menningarsprangi sjónvarpskonunnar Sirrýjar, Lífsins list í kvöld, verða skoðaðir mjög ólíkir og skemmtilegir veitingastaðir undir vallarvæng Reykjavíkurflugvallar.

Sunnan megin við Reykjavíkurflugvöll í Skerjafirði er Bike Cave sem er nýr veitingastaður þar sem einnig er hægt að skella í þvottavél, gera við dekk, leigja sér skellinöðru og kíkja í blöðin yfir kaffibolla. 

Og sunnan megin við flugvöllin, í Vatnsmýrinni er hönnun eftir Alvar Alto. Sveinn Kjartansson rekur Aalto Bistro í Norræna húsinu. Hann sest með Sirrý í gróðurskálann við húsið. Og heilsað verður upp á Finn Þ. Helgason sem starfar í bókasafni Norræna hússins þar sem hægt er að leigja sér grafíklistaverk, hljóðbækur og kvikmyndir svo eitthvað sé nefnt. 

Einnig er litast um í höggmyndalistagarði Einars Jónssonar á Skólavörðuholti.

Myndatökumaður er Friðþjófur Helgason. 

Þáttinn má nálgast á hringbraut.is.