Advania kaupir finnska félagið vintor

Advania hefur keypt finnska félagið Vintor, sem býður upp á sérhæfðar stafrænar samskiptalausnir. Með kaupunum hefst starfsemi Advania í Finnlandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Advania.

Fram kemur í tilkynningunni að með kaupunum styrki Advania stöðu sína á Norðurlöndum, hyggist bjóða fjölbreytt lausnaúrval sitt í Finnlandi og stefnir á frekari vöxt þar í landi. Hjá Vintor starfa 20 sérfræðingar. Meðal viðskiptavina Vintor eru rótgróin alþjóðleg fyrirtæki á borð við Adidas, Securitas, KONE, Konecranes, Kemira og Fazer.

„Advania stígur sín fyrstu skref inn á finnskan markað með kaupunum á Vintor og leggur grunn að frekari starfsemi í Finnlandi. Félagið verður því starfandi á öllum Norðurlöndum. Bæði Advania og Vintor hafa á að skipa sérfræðingum á sviði samskiptalausna sem meðal annars eru notaðar í þjónustuverum íslenskra fyrirtækja. Það er því mikill fengur fyrir Advania að fá inn 20 nýja sérfræðinga á sviði samskiptalausna og þjónustuupplifunar,“ segir Ægir Már Þórisson forstjóri Advania á Íslandi.

Einnig kemur fram að Vintor hefur þróað samskiptalausnir sem gera fyrirtækjum kleift að eiga skilvirk samskipti við viðskiptavini, birgja eða starfsfólk. Lausnirnar halda utan um samskiptasögu á öllum mögulegum miðlum, t.d. á samfélagsmiðlum, vefspjalli og tölvupósti. Lausnaframboð Advania á sviði samskipta og þjónustu verður enn breiðara með kaupunum á Vintor.

„Við sjáum gríðarleg tækifæri í samrunanum við Advania. Fyrirtækið okkar er afar sérhæft og í harðnandi samkeppnisumhverfi njótum við góðs af stærð og styrk Advania. Við hlökkum til að að verða hluti af öflugri heild með breitt þjónustuframboð,“ segir Sami Grönberg forstjóri Vintor.