Söngvarainn sívinsæli Geir Ólafs vinnur þessa dagana að nýrri hljómplötu þar sem verður að finna fjöldann allan af áður ófluttum lögum úr lagasafni Jóhanns G. Jóhanssonar tónlistar- og myndlistarmanns sem lést fyrir réttum tveimur árum.
Geir vinnur plötuna að mestu með amerískum tónlistarmönnum úti í Hollywood en upptökuverið er ekki af verri endanum og heitir Capitol records. Geir og Jóhann voru perluvinir á meðan báðir lifðu og hafði sá síðarnefndi treyst Geir fyrir þessum lögum rétt áður en hann féll frá.
Að sögn Geirs eru þarna miklar perlur sem efalítið eiga eftir lifa lengi með þjóðinni eins og svo mörg laga Jóhanns sem áður hafa komið út á hljómplötum, en Jóhann G. var og er dáður tónlistarmaður og lagahöfundur.
Hann var ekki einhamur í listinni, enda aukin heldur rómaður myndlistarmaður og mun eitt listaverka hans prýða framhlið plötunnar sem nefnist Geir Ólafs sings Jóhann G - Just að simple man.
Von er á plötunni þegar líða tekurá árið eða rétt um það leyti sem Geir sjálfur verður pabbi í fyrsta sinni en kólumbísk kona hans er gengin fjóra mánuði á leið.