Aðstæður góðar og verða enn betri

Mikill bjartsýnistónn er hjá rekendum stærstu fyrirtækja landsins.

Niðurstöður könnunar Gallup meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins endurspegla góðar aðstæður í öllum megin atvinnugreinum atvinnulífsins. Mat stjórnenda á núverandi aðstæðum í atvinnulífinu eru svipaðar og á þensluárinu  2007 og telja þeir að aðstæðurnar verði enn betri á næstunni.

Þótt enn sé nægt framboð af starfsfólki fer þeim fyrirtækjum fjölgandi sem finna fyrir vinnuaflsskorti. Búast má við rúmlega 1% fjölgun starfsmanna á almennum vinnumarkaði á næstu sex mánuðum, sem svarar til 1.400 starfa. Skortur á starfsfólki og áformuð fjölgun starfsmanna er langmest í byggingarstarfsemi.

Þeim stjórnendum fjölgar töluvert sem búast við aukningu eftirspurnar á innanlandsmarkaði á næstunni. Áhyggjur stjórnenda af þróuninni á erlendum mörkuðum fer hins vegar vaxandi.

Stjórnendur búast við að verðbólgan verði 3,6% á næstu 12 mánuðum.

 Sjá nánari umfjöllun á vef SA