Aðstaðan í nýja golfskálanum hjá golfklúbbnum leyni er framúrskarandi og laðar til sín gesti allan ársins hring

Golfklúbburinn Leynir á Akraness hefur eignast nýjan og stórglæsilegan golfskála þar sem aðstaðan er framúrskarandi og laðar til sín gesti allan ársins hring.  Sjöfn Þórðar heimsækir vertinn Hilmar Ægi Ólafsson frá Galito Bistro Café sem hefur umsjón með allri veitingasölu í golfskálanum og fær innsýn í aðstöðuna sem þar hefur risið auk þeirra þjónustu sem þar er boðið uppá.  Það eru ekki bara golfara sem njóta þessara glæsilegu húsakynna heldur geta gestir og gangandi notið þess þegar opið er.  „Hingað eru allir velkomnir og hægt er að leigja aðstöðuna fyrir hina ýmsu viðburði eins og afmæli, brúðkaup, fermingar svo fátt sé nefnt,“ segir Hilmar og er hinn ánægðasti með aðstöðuna hjá Golfklúbbnum.  Missið ekki af áhugaverður innliti í skálann í þættinum í kvöld.

Þátturinn Fasteignir & Heimili verður á dagskrá í kvöld klukkan 20.30 og aftur klukkan 22.30 og jafnan ferskur, fjölbreyttur og með persónulegum blæ.