Svanur Kristjánsson, prófessor í stjórnmálafræði, telur að með afsögn forstjóra Stapa lífeyrissjóðs í gær, Kára Arnórs Kárasonar, hafi skapast fordæmi fyrir aðra valdamenn sem tengjast Panamaskjölunum til að segja af sér og axla með því ábyrgð.
\"Kári Arnór Kárason framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins Stapa axlar ábyrð af mikilli reisn, vafningslaust. 354 ráðherrar eru í löndum Vestur- Evrópu þar af eru fjórir nefndir í Panamaskjölum. Tveir ráðherrar hafa sagt af sér, forsætisráðherrar Íslands og Úkraníu. Tveir sitja enn: Fjármálaráðherra íslenska lýðveldisins og Innanríkisráðherra íslenska lýðveldisins,\" segir Svanur í færslu á facebook.
Hann heldur áfram:
\"Að mínu mati grefur slíkt framferði ráðamanna undan nauðsynlegu trausti almennings til stjórnvalda. Hvernig væri að fylgja fordæmi Kára Arnórs Kárasonar?\" spyr prófessor Svanur.
Kári Arnór Kárason sagði í gær í yfirlýsingu er hann sagði af sér að að þótt eflaust megi deila um hversu alvarlegir þeir hlutir séu sem aðild hans að tveimur félögum í aflandsríkjum sé þá meti hann þá umræðu sem nú er í samfélaginu um aflandsfélög og skattaskjól þannig \"að ekki sé boðlegt að maður sem er í minni stöðu, þ.e. forstöðumaður aðila sem varslar lífeyrissparnað fyrir almenning, hafi tengst slíkum félögum.\"