Aðrar þjóðir hafa litið til íslands

Aðrar þjóðir hafa litið til Íslands og hvernig unnið var úr hruninu hér á landi segir Ásgeir Jónsson, dósent við Háskóla Íslands og höfundur bókar um íslensku fjármálakrísuna. Hann og Hersir Sigurgeirsson, dósent við Háskóla Íslands, ræða meðal annars hvernig ríkissjóður græddi fjárhagslega á hruninu og aðrar merkilegar staðreyndir sem koma fram í bókinni í Viðskiptavikunni sem verður á dagskrá í kvöld kl.21:30.

Í Viðskiptavikunni verður rætt við Sesselju Vilhjálmsdóttur hjá Tagplay sem hefur þróað nýja lausn sem tengir heimasíður fyrirtækja beint við samfélagsmiðla. Einnig verður rætt við Hjört Þór Steindórsson, forstöðumann á fyrirtækjasviði Íslandsbanka um vindorku og tækifærin sem liggja þar.  

Umsjónarmaður þáttarins er Dögg Hjaltalín og stiklu úr þætti kvöldsins má sjá hér að neðan: