Adolf Ingi gagnrýnir tvö söfn í Vestmannaeyjum: Pirrandi að tvö aðal söfnin séu lokuð fyrir lítinn sjö manna prívat hóp

Adolf Ingi Er­lings­son leið­sögu­maður, gagn­rýnir tvö aðal söfn Vest­manna­eyja fyrir að loka fyrir al­menning, þar sem sjö manna hópur vildi ekki umgangast aðra.


Í pistli Adolfs á hópnum Bakland Ferðaþjónustunnar á Facebook, segir hann hann hafi átti æðislegan dag í Eyjum,

"Það eina sem skyggði á var að tvö aðal söfnin voru lokuð al­menningi vegna þess að ein­hver sjö manna hópur þykist vera svo merki­legur að hann getur ekki um gengist venju­legt fólk. For­stöðu­menn beggja safnanna björguðu okkur samt þannig að við gátum skotist í gegn. Hvað finnst fólki um það að loka fyrir al­menning til að þjónka ein­hverju VIP liði?“

Adolf segir í samtali við blaðamann að hann hafi verið í nokkurra klukktíma stoppi, „Við vorum að reyna að ná að gera allt og er svo­lítið pirrandi að tvö aðal söfnin séu lokuð fyrir lítinn sjö manna prívat hóp, sem er svo merki­legt að það geti ekki verið innan um annað fólk."

Hann segir um­rædd söfn væru Hvala­safnið og Eld­heimar, og spyr hvað fólki finnist um þetta al­mennt fyrir ferða­þjónustuna á Ís­landi. Eins hafa verslanir lokað fyrir litla hópa til að geta verslað í friði, og bitnar svo á al­menningi og mögu­lega sölunni?

Adolf bætir við, „Fólk gæti sett á sig grímu og der­húfu eins og hefur verið nú á tímum heims­far­aldursins, þá þekkir það enginn. þetta er ekkert stór­mál, bara leiðin­legt.“