Myndir af illa förnum hræjum af mávum sem komið hefur verið fyrir í kringum húsið Skálará við Vatnsveituveg í Elliðaárdal hafa vakið talsverðan usla á Facebook-síðu Íbúasamtaka Betra Breiðholts. Myndunum var deilt inn á síðuna fyrir rúmum sólarhring og er greinilegt að sitt sýnist hverjum.
Hafa um eitt hundrað athugasemdir birst og þar er aðkomunni líkt við hryllingsmynd. Þá kemur fram að ábendingum hefur verið komið áleiðis til lögreglu.
Aðili sem þekkir til á svæðinu segir að hræjunum hafi verið komið þarna fyrir í nokkur ár og því skilji hann ekki þetta skyndilega uppþot. „Mér skilst að þessir fuglar séu sjálfdauðir. Sá sem býr þarna hefur komið þeim fyrir til þess að fæla í burtu aðra máva. Þetta er kannski ekki geðslegt en þetta heldur varginum í burtu og er líklega búið að bjarga ófáum andar- og kanínuunganum,“ segir viðkomandi.