Aðildarumsóknin var harmleikur

Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, segir að aðildarumsóknin að Evrópusambandinu hafi verið slys, verið harmleikur. Þetta sagði hann núna í Þjóðbraut, sunnudagsumræðunni á Hringbraut.

Hann segir VG hafa haft þá stefnu að sækja ekki um aðild að Evrópusambandinu. Því hafi verið rangt að gera það. Jón hikaði samt ekki við að verða ráðherra í ríkisstjórn sem samþykkti aðildarviðræður.

Að endingu fór svo að Jón sagði úr þingflokki Vinstri grænna. Hann segist hafa fylgt stefnu flokksins í hvívetna. „Það var pólitískur ágreiningur. Evrópusambandið vildi ekki halda áfram nema það fengi yfirráð yfir auðlindinn okkar.“

Þegar Jón var sjávarútvegsráðherra var strandveiðum komið á. Hann segist ánægður með hvernig það hefur tekist.