Aðgengi best en ástand vega verst

Ástand ferðamannastaða, öryggisþættir og aðgengi eru þeir þættir sem ferðamenn eru ánægðastir með en mannfjöldi á ferðamannastöðum og ástand vega fær lökustu útkomuna. Þetta kemur fram í nýrri frétt frá Ferðamálastofu. Þar eru birtar niðurstöður úr nýrri könnun Ferðamálastofu fyrir júlí til nóvember í fyrra.

Þar kemur m.a. fram að Langflestir gesta komu til landsins í frí eða 86,4 prósent og viðskiptalegur tilgangur var nefndur í 3,5 prósenta tilvika. Aðrir voru að heimsækja vini og ættingja, í tímabundinni vinnu eða nefndu aðra ástæðu.

Með könnunni er nú einnig hægt að meta með nákvæmari hætti umfang gistingar gistu 4,3 prósent ferðamanna hjá vinum eða ættingjum, höfðu íbúðaskipti eða voru sófagestir og tæp 4 prósent gistu í tjaldi eða húsbíl utan skipulagðra tjaldsvæða.

Hagstofan kemur einnig að könnuninni