Aðeins hálfleikur í kjaraviðræðum

Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, voru gestir Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut á fimmtudagskvöld. Þar ræddu þeir hversu mikið verk væri að vinna í kjaraviðræðunum sem framundan eru, enda aðeins búið að semja við um helming launþega. Þeir telja ýmis vandamál geta komið upp í viðræðunum.

Kjarasamningar ríkis- og bæjarstarfsmanna losnuðu 1. apríl og vonast Þorsteinn og Logi til þess að hinir víðtæku samþykktu kjarasamningar milli tæplega 30 stéttarfélaga og SA hjálpi til í kjaraviðræðum ríkis- og bæjarstarfsmanna, en telja þó að það gæti reynst erfitt.

Þorsteinn bendir á vandamál sem gætu komið upp við að semja t.d. við BHM. „Þar held ég að við munum sjá alvöru vandamál. BHM er búið að tala um árum saman að það þurfi að meta hér menntun til launa og þegar við horfum t.d. á fjölmennar kvennastéttir, kennara, umönnunarstéttir o.s.frv., þá sjáum við bara að það er alls ekki tilvikið, og langt frá því. Þannig að þetta eru stéttir sem búa við það umhverfi að það er krafa um fjögurra til sex ára háskólanám og það er engin leið að sýna fram á það að þetta nám sé að borga sig fyrir viðkomandi einstaklinga.“

Logi nefnir einnig námsmenn og segir að ekki mega gleyma þeim. „Núna þegar laun eru að hækka í 368 þúsund á næstu 3-4 árum, eiga námsmenn þá áfram að vera á 170 þúsundum og vextir jafnvel af endurgreiðslum að hækka?\"

Þorsteinn segir að aðeins sé kominn hálfleikur í kjaraviðræðurnar og því mikil vinna framundan. „Hér verður að hafa í huga að þetta er rétt liðlega helmingur vinnumarkaðarins sem er að semja í þessari lotu og þessi helmingur vinnumarkaðarins samdi um launastefnu sem hinn helmingurinn getur ekki sætt sig við. Það er það sem ég held að verði mesta áskorunin þegar fram í sækir með þetta. Það hefur lengi verið bent á að þegar unnið er með krónutöluhækkanirnar, þá er auðvitað verið að þjappa launadreifingunni meira og meira saman, sem þýðir einmitt að ávinningur t.d. menntunar og ábyrgðar minnkar. Við erum þegar með stóra hópa eins og einmitt kennarana sem eru að kvarta mjög sáran undan því að menntun þeirra sé ekki metin til launa og þeim ætlað að taka enn einni svona breytingunni. Er þetta ekki grundvallarvandamál vinnumarkaðarins í dag, að ASÍ hefur nú undanfarin tíu ár keyrt launastefnu sem er í bullandi ágreiningi við t.d. opinbera vinnumarkaðinn, en komist í rauninni áfram á stærðinni? Við getum í rauninni sagt frekjunni með það að gera,“ segir Þorsteinn og telur ljóst að BHM muni fremur krefjast prósentuhækkana.

„Við eigum annað óunnið líka, sem þarf að taka á núna á milli kjarasamninga, þegar það er búið að loka þeim öllum, og það er auðvitað að stéttirnar innbyrðis geti einhvern veginn tekið og náð samkomulagi um hvar þær eigi að liggja innbyrðis,“ segir Logi.

Umræður Þorsteins og Loga má finna í heild sinni hér: