Þau orða Kára Stefánssonar sem féllu í sjónvarpsþætti Gísla Marteins á Rúv um helgina um forgang í heilbrigðisþjónustu hafa vakið mikla athygli.
Þar sagðist Kári nýkominn úr aðgerð vegna gáttaflökts sem á einhverjum tímapunkti veldur blóðtappa sem getur haft alvarlegar afleiðingar. Kári nefndi þetta í tengslum við umræðu um nýjan spítala og sagði að fremur ætti að leggja fjármuni í að styrkja þá innviði sem fyrir væru. Hann tók aðgerð sína sem dæmi um að af 150 manns sem þörfnuðust þessarar aðgerðar væri „einhver maður“ innan kerfisins sem veldi þá 60 sem gætu fengið hana á ári.
Hringbraut hefur reynt að fá upplýsingar sem staðfesta frásögn Kára en án árangurs.
Fram kom einnig hjá forstjóra Decode að fara yrði í hart við fjárveitingarvaldið á Alþingi til að útvega þau hundruð milljarða sem þjóðin væri sammála um að þyrfti til að koma heilbrigðiskerfinu í lag.