Aðeins 123 bú eru með yfir 600 ær

Langflestir bændur eru með eitt hundrað níutíu og níu ær eða færri. Þetta eru 1.520 sauðfjáreigendur sem eru 63% af heildinni. En 2.422 sauðfjáreigendur voru á landinu haustið 2016. Samtals voru 286 bú með 400-599 ær eða 11,85 af heildini. Fjöldi ásettra kinda árið 2016 voru 471.728.

Gögn um fjölda sauðfjár miðast við vetrarfóðrarðar kindur samkvæmt upplýsingum frá bændum og frístundabændum. Fjöldi sauðabúa voru 2.422 og hfaði þeim fækkað um 76 bú. Sauðfé fjölgað samt á milli ára.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir landbúnaðaráðherra telur að fækka beri sauðfé og mæta kjaraskerðingu bænda með sérstökum greiðslum úr ríkissjóði. Bændur telja að tillögur hennar séu í rétta átt.

Haraldur Benediktsson alþingismaður Sjálfstæðisflokksins ræddi við Bændablaðið fimmtudaginn 7. september sl. Hann víkur þar að hugmyndum um annars vegar fækkun bænda og hins vegar fækkun sauðfjár. Haraldur segist ekki vilja sjá meiri eyðibílastefnu. 

 

[email protected]