Mikill og viðvarandi skortur er á iðn- og tæknimenntuðu fólki á Íslandi og ef fram heldur sem horfir mun skorturinn standa íslenskum iðnaði fyrir þrifum í fyrirsjáanlegri framtíð og rýra samkeppnisstöðu hans við önnur lönd sem einmitt hafa tekið sig á í þessum efnum. Ef skoðað er meðaltal þeirra grunnskólabarna sem útskrifast á hverju ári fara aðeins 500 af 4700 krökkum í iðn- og tækninám, eða rétt um tólf prósent hópsins. Það er tvöfalt minni fjöldi en nýliðun í iðn- og tæknigreinum þarf á að halda. Á Iðnþingi í gær var þessi vandi ræddur í þaula en þar heyrðust þau áhrínsorð að gera beri iðn- og tækninám að fyrsta valkosti fyrir ungmenni á næstu árum; það nám væri langtum meiri og betri trygging fyrir atvinnu heldur en bóknám og bæri að stefna á það að þriðjungur ungmenna árið 2030 færi í verklegt nám fremur en að stauta sig á bókina eina.
Aðeins 12% velja iðn- og tækninám
Fleiri fréttir
Nýjast