Aðeins 1% af sparnaði í hlutabréfum

Benedikt Jóhannesson, ritstjóri Vísbendingar spyr í nýjasta hefti þess hvar Íslendingar komi sparnaði sínum helst og best fyrir - og svarið af samantekt hans er skýr; þeir hafna hlutabréfum en velja lífeyrissjóði og steypu.

\"Margar kenningar eru uppi um það hvernig best sé að fjárfesta miðað við aldur og áhættufíkn,\" skrifar Benedikt og segir að þótt hlutabréf kunni að gefa besta ávöxtun til lengdar sé ekki ráðlegt að eiga allt undir þeim:

\"Að meðtöldum lífeyrissparnaði nemur heildarsparnaðurinn um þremur og hálfri landsframleiðslu. Liðlega 40% eru í hvoru um sig, lífeyrissjóðum og fasteignum. Um 7% eru bankainnistæður, 4% verðbréf, bílar um 3% en hlutabréf aðeins 1%.\"

Benedikt finnst þessi mynd af íslenska hagkerfinu athyglisverð, en hann bendir á að peningalegur sparnaður Íslendinga væri sáralítill ewf ekki væru iðgjöld í lífeyrissjóði.