Logi Bergmann Eiðsson fjölmiðlamaður tístir á Twitter í dag að ef jólalag Leoncie komi honum ekki í jólaskap þá viti hann ekki hvað.
Lagið kom út á síðasta ári og vakti þá ekki mjög mikla athygli. Virðist sem því hafi vaxið ásmegin síðustu daga og telja fleiri en Logi að lag indversku prinsessunnar kveiki neistann eins og rætt hefur verið um á samfélagsmiðlum í dag.
Lagið heitir Christmas Bluff og dylst engum sú ramma ádeila sem þar birtist á neysluhyggjuna hjá indversku prinsessunni þótt ætíð sé stutt í stuðið!
Um Leoncie segir m.a. á Wikipediu: \"Leoncie er listamannsnafn indversk-íslenskrar söngkonu sem hefur stundum kallað sig „Indversku prinsessuna“ (e. Indian Princess Leoncie) eða „Ískryddið“ (e. Icy Spicy Leoncie).[1] Meðal laga hennar má nefna Ást á pöbbnum.
Myndbandið má horfa á youtube hér.