Aðalsteinn setur spurningamerki við smáframboð

Stjörnublaðamaðurinn Aðalsteinn Kjartansson setur stórt spurningamerki við að lítil framboð með fáa raunverulega stuðningsmenn fái að bjóða sig fram til Alþingis.

„Í kosningunum voru tvö framboð sem fengu 989 atkvæði. Af hverju er það svona auðvelt fyrir menn með ekkert bakland eða stuðning að fá pláss til að básúna eigin skoðunum í fjölmiðlum í umgjörð sem lætur þá lýta út fyrir að hafa vægi?,“ spyr Aðalsteinn á Twitter. „#Eins og blogg sem við erum þvinguð til að lesa.“

Hann vísar bæði til Ábyrgrar framtíðar, flokkinn sem bauð eingöngu fram í öðru Reykjavíkurkjördæminu, og Frjálslynda lýðræðisflokksins. Guðmundur Franklín Jónsson hefur gefið út að hann sé hættur í stjórnmálum, hann gaf út yfirlýsingu fyrr í dag um að kjósa ætti aftur en fjarlægði það síðar.

„Það þurftu að lágmarki 1.890 að mæla með framboði O-lista sem fékk þó bara 845 atkvæði. Y-listi, sem bauð bara fram í einu kjördæmi, þurfti 330 meðmæli að lágmarki og fékk 144 atkvæði,“ segir Aðalsteinn.

„Það er hægt að hækka þröskuldinn (hvort sem er með því að fjölga meðmælendum eða öðrum leiðum) án þess að það útiloki raunverulegar hreyfingar. Það er fáránlegt að kosningar eftir kosningar séu framboð að fá færri atkvæði en meðmæli.“

Aðspurður hvort þetta sé ekki bara skemmtilegt segir Aðalsteinn það ekki markmið kosninga:

„Ég hef gaman að góðu djóki eins og hver annar en blessunarlega er það ekki markmiðið með þingkosningum að finna mesta grínarann.“