Aðalsteinn fékk furðulega sendingu frá Krónunni: „Meikar samt engan sens“

Aðalsteinn Kjartansson, stjörnublaðamaður Stundarinnar, fékk vægast sagt furðulega sendingu þegar hann ætlaði að panta banana með heimsendingu. Hann hélt fyrst að hann hefði fengið eitthvað annað í staðinn fyrir bananana en svo reyndist ekki vera, Aðalsteinn hafði fengið nánast kíló af engifer.

Aðalsteinn birtir svo mynd af herlegheitunum á Twitter:

„Áður en Krónan fer í mál við mig út af bönununum þá gleymdi ég bara að panta þá. Þetta með engiferið meikar samt engan sens,“ segir hann við.

Andri nokkur kom með ábendingu: „Þú getur græjað heimatilbúið engifer te og verið laus við hálsbólgu og kvef næstu mánuðina.“ Aðalsteinn svaraði að hann væri að gúggla hvernig ætti að útbúa engiferskot.