Aðalleikona féll 5 metra og brotnaði

Fresta þarf frumsýningu Þjóðleikhússins á leikritinu Hleyptu þeim rétta inn eftir að aðalleikkona verksins, Vigdís Hrefna Pálsdóttir féll niður úr leikmynd verksins og brotnaði á hæl og rist. Frumsýningin átti að vera annaðkvöld, en frestast um minnst viku.

Ari Matthíasson, Þjóðleikhússtjóri segir að leikkonan hafi virst í ágætu lagi þegar hún fór á slysadeildina og slegið jafnvel á létta strengi, en þegar hún hafi komist undir læknishendur hafi hið sanna komið í ljós. Hælbrotin muni hún ekki geta leikið í verkinu næstu daga.
 

Vigdís var að klifra í leikmyndinni þegar slysið varð. Ari segir hana hafa gert það oft áður, enda hluti af sýningunni, og búið að fara sérstaklega yfir það með þjálfara. Í þetta skipti hafi hún hins vegar misst handfestuna og fallið hálfan þriðja metra niður leikmyndina og lent þar á fótunum áður en hún datt aðra eins hæð niður fyrir sig þar sem hún skall flöt á sviðinu með fyrrgreindum afleiðingum.

Að sögn Ara leit þetta frekar illa út utan úr sal þar sem um 300 manns voru að horfa á forsýninguna - og var fólki eðlilega nokkuð brugðið, að sögn leikhússtjórans.