Aðalhagfræðingur si segir viðvörunarbjöllur á lofti

Samkeppnishæfnin er lykilatriði bæði fyrir iðnaðinn og hagkerfið allt. Segja má að það séu ákveðnar viðvörunarbjöllur á lofti. Það hefur ekki verið mikill vöxtur í gjaldeyristekjum og útflutningi iðnaðar undanfarið sem ber þá merki þess að samkeppnishæfnin sé að einhverju  leyti löskuð gagnvart erlendum keppinautum. Þetta segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins, í frétt Ingvars Haraldssonar, blaðamanns, í Viðskiptablaðinu í dag. 

Nánar á

http://www.si.is/frettasafn/adalhagfraedingur-si-segir-vidvorunarbjollur-a-lofti