Aðalfundur saf 2017

Grímur Sæmundsen læknir er formaður SAF og forstjóri Bláa lónsins. Grímur hefur verið formaður samtakanna frá því apríl 2014 og hann hafði forystu um stofnun Bláa lónisns hf árið 1992. Grímur hefur verið framkvæmdastjóri og forstjóri félagsins frá upphafi. Hann hefur tekið virkan þátt í þróun íslenskrar ferðaþjónustu bæði sem formaður samtaka ferðaþjónustu og í tengslum við uppbyggingu Bláa lónsins. Undir forystu Gríms hefur Bláa lónið hlotið margar viðurkenningar. Þær helstu eru Nýsköpunarverðlaun árið 2000. Markaðsfyrirtæki ársins hjá ÍMARK árið 2001. Útflutningsverðlaun Forseta Íslands árið 2004. Grímur var valinn Markaðsmaður árisins árið 2013 og Maður atvinnulífsins árið 2013 af Frjálsri verslun.

Í störfum sínum sem forstjóri Bláa lónsins hefur Grímur lagt áherslu á stuðning við uppbyggingu ferðaþjónstu á Íslandi og hefur hann miðlað þeirri reynslu og þekkingu sem er til staðar hjá Bláa lóninu. Bláa lónið er á meðal stofnaðila Start up Tourism en þar er áhersla á að stuðla að nýsköpun innan greinarinnar. Undir forystu Gríms tóku Samtök ferðaþjónustunnar þátt í að setja á fót Stjórnstöð ferðamála í samstarfi við íslensk stjórnvöld og Samtök íslenskra sveitarfélaga. Grímur hefur átt sæti í stjórna Samtaka atvinnulífsins (SA) frá árinu 2004. Hann hefur setið í framkvæmdastjórn SA frá árinu 2006 og hafði hann frumkvæði um að Samtök ferðaþjónustunnar fengju sæti í framkvæmdasatjórninni. Grímur var varaformaður stjórnar SA á tímabilinu 2009-2013.