Að trúa sjálfum sér - tæknilega

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fullyrti enn og aftur í Kastljósinu í gærkvöldi að hann hefði aldrei átt peninga í skattaskjóli.

 
Eins ótrúlega og þetta hljómar í eyrum annarra og er þvert á fram komin gögn, þá virtist Sigmundur trúa þessu sjálfur.
 
Og viti menn - tæknilega er þetta rétt hjá honum.

 

Peningarnir í eigu Wintris voru aldrei á Tortólu. Þeir voru á bankareikningum annars staðar enda er fátt um banka á eyjunni.
 
Wintris var hins vegar skráð á Tortólu og eini tilgangurinn með slíkri skráningu er að komast undan skattareglum og ákvæðum um upplýsingagjöf, svo sem ársreikninga, sem sjálfsögð þykja annars staðar.
 

Bóndinn á Hrafnabjörgum III er þess vegna tæknilega ekki að ljúga, þótt vitaskuld sé hann að því í reynd.

 
Og þess vegna virðist honum líka takast að trúa sjálfum sér - tæknilega.