Að standa frammi fyrir freistingum

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var í löngu viðtali við Sigurjón M. Egilsson í ágúst 2014. Þar var rætt um lagabreytingar á Seðlabankanum árið 2009 sem urðu til þess að Davíð Oddsson og tveir sambankastjórar hans urðu að óviljugir að láta af störfum í bankanum. Eins var rætt um Landsdómsmálið. Bæði málin snúa að forverum Bjarna í formannsstóli Sjálfstæðisflokksins.

Hafa þessi tvö málk áhrif á Bjarna og flokkinn.

„Lífið heldur áfram. Þetta hefur áhrif á traust. Þetta hefur áhrif á hvað maður trúir á að sé hægt að byggja á í samskiptum. Þetta dregur líka fram ákveðinn mun á afstöðu til ýmissa mála. Í mínum huga ýmissa prinsippmála. Hversu langt eru menn tilbúnir að ganga, hvar liggja mörkin milli þess sem þú ert tilbúinn að gera til að ná stjórnmálalegum markmiðum og því sem þér í hjartanum finnst vera algjört prinsippmál sem þú tekur ekki þátt í. Þar tala verkin.

Hversu auðvelt hefði verið fyrir okkur í Sjálfstæðisflokknum að ná fram skammtíma pólitískum markmiðum með því að ákæra pólitíska andstæðinga í þessu Landsdómsmáli? Þetta var bara prinsippmál sem við tókum ekki þátt í.

Í báðum þessum málum voru fyrrverandi formenn Sjálfstæðisflokksins í lykilhlutverkum.  Þið hafið þess vegna meira að verja.

„Þess vegna verður málið heitara. Fyrir pólitíska andstæðinga verða freistingarnar stærri. Þá reynir á hvað menn geta og gera þegar þeir standa frammi fyrir stórum freistingum.“