Að setja aðra niður sjálfum sér til hækkunar

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra missir ekki svefn yfir óánægju fólksins

Jón Trausti Reynisson skrifar leiðara á vefmiðlinum Stundin undir fyrirsögnini „Vandamálið með forsætisráðherrann okkar“.

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra skrifar Jón Trausti er ekki vansvefta yfir því að yfirgnæfandi meirihluti landsmanna styðji ekki ríkisstjórn hans. Bjarni biður almenning að gæta hófs. Sjálfur vill hann ekki ræða að takmarka óhóflegar launahækkanir til þröngs hóps í kringum hann. Meirihluti landsmanna telur Ísland vera á rangri braut. Forsætisráðherra hefur undanfarna mánuði sýnt einkenni sem leiðtogi.

En það eru til öðruvísi leiðtogar skrifar Jón Trausti. Þjónandi leiðtogar vinna fyrir fólkið sitt frekar en sjálfa sig eða sína. Þeirra starf gengur út á að lyfta upp öðrum. Bæta heildina. Þeir eru meðvitaðir um áhrif sín á samfélgið. Þeir sýna öðrum hluttekningu. Þeir hlusta og viðurkenna ábyrgð sína. Þeir nota rök frekar en vald til að fá sínu framgengt. Auðsýna auðmýkt og hógværð. Þeir tryggja trúverðugleika sinn með heiðarleika og viðurkenna aðra.

Jón Trausti lýkur leiðaranum með þessum orðum: „Nútímalegir þjónandi leiðtogar, sem virka á forsendum almennings verða víkjandi svo lengi sem getan til að einfalda, margfalda, útskýra, hræða, gera lítið úr, snúa út úr og framkalla foringjadýrkun, er það sem þarf til að fá atkvæði okkar. Lausnin liggur hjá okkur.“

Nánar www.stundin.is