Að ná saman um stóru línurnar

Þórður Snær Júlíusson skrifar fréttaskýringu um stjórnarmyndunarumboð Katrína Jakobsdóttur.  Fyrir liggur að flokkarnir eru ósammála þegar kemur að mörgum fínni blæbrigðum stjórnmálanna.  Þessu gerir Þórður Snær skil.  Nánar á www.kjarninn.is  

Rifja má upp það viðhorf Katrínar Jakobsdóttur  að það sé styrkleiki fremur en veikleiki að meirihlutinn sé afar tæpur.  Vanda þurfi vel til verksins. 

Í raun sameinist þessir fjórir flokkar bara um að eitt að halda Sjálfstæðisflokknum frá völdum segir heimildarmaður Hringbrautar innan Sjálfstæðisflokksins.

Hér skal skotið inn í textann að heimildir Hringbrautar innan VG staðfesta að ríkar efasemdir eru um það innan VG að nokkuð sé að marka orð Pírata um að sá flokkur sé heill og staðfastur í þessum viðræðum.  Mikil áhætta fylgi því að taka inn Pírata.  Einkum hafa liðsmenn VG á landsbyggðinni ríkar efasemdir um heilindi Pírata.    

Þórður Snær rifjar upp að VG voru með það á kosningastefnuskrá að leggja á eignaskatt og hátekjuskatt og auðlegðarskatt.  VG eru sagðir til í að draga verulega úr þessum kröfum ef aðrar leiðir skila þeim markmiðum VG að að auka skatttekjur ríkissjóðs í fjárfestingar VG í þeim málum sem hugsanleg ríkisstjórn VG hefur þegar náð saman um.    

[email protected]