Að minnsta kosti 257 fórust með flugvél alsírska hersins sem hrapaði í dag skömmu eftir flugtak frá Boufarik herflugvellinum skammt frá Algeirsborg.
Ekki hefur verið upplýst um tildrög slyssins. Flestir hinna látnu voru hermenn og fjölskyldur þeirra. Flugvélin var af gerðinni Ilyushin, smíðuð í Sovétríkjunum.