Að láta kaupmannsdrauminn rætast

Full­yrða má að flestir Íslend­ingar kann­ist við stór­versl­un­ina Magasin d­u Nord. Vel­flestir Íslend­ingar sem hafa komið til Kaup­manna­hafnar hafa rölt um stór­hýsið við Kóngs­ins Nýja­torg en auk þess rek­ur Magasin fimm aðrar versl­anir og sú sjö­unda verður opnuð í Ála­borg í næsta mán­uð­i. 

Saga þess­arar þekktu stór­versl­unar hófst í Árósum 1868, fyrir réttum 150 árum. Stofn­end­urnir vor­u T­heodor Wessel og Emil Vett og versl­un­in, sem seldi vefn­að­ar­vörur hét Emil Vett & Co. Rekst­ur­inn gekk vel og árið 1870 opn­uðu þeir félagar verslun á Ø­sterga­de (­síðar hluti Striks­ins) í Kaup­manna­höfn. Ári síðar flutti síðar flutti versl­unin á þann stað við Kóngs­ins Nýja­torg þar sem hún er enn í dag. Versl­unin hét þá De ­for­ene­de Hvidevar­eforretn­inger ved T­h. Wessel & Co og var í hluta Hot­el d­u Nor­d en það hús var rifið árið 1893 og núver­andi versl­un­ar­hús byggt. Í virð­ing­ar­skyni við gamla hót­elið breyttu þeir félagar árið 1879 nafn­inu á versl­un­inni í Magasin d­u Nord. Starf­semin í Árósum gekk vel, versl­unin flutti í stærra hús­næði og fyr­ir­tækið stækkað ört. Árið 1890 voru sam­tals 50 Magasin d­u Nor­d versl­anir víða í Dan­mörku, margar þeirra litlar og í eigu ein­stak­linga sem önn­uð­ust rekst­ur­inn. Á fyrstu ára­tugumsíð­ustu aldar fjölg­að­i Magasin versl­unum og árið 1925 voru þær 170 tals­ins.  

Nánarr á

https://kjarninn.is/frettir/2018-08-12-ad-lata-kaupmannsdrauminn-raetast/