Að hlaupa apríl

Í dag segjast fjölmiðlar innanlands sem utan sleppa því að láta fólk hlaupa apríl.  Svo mikið sé logið að fréttir sem hljóma eins og þær séu ósannar eru því líkast til sannar í dag.

Í dag er því ekki boðið upp á aprílgabb. Hvað þá að aprílnarr sé í boði.  Falsfréttir eru sagðar svo algengar að aprílnarr í dag þætti hversdagslegt.