Actavis flytur framleiðsluna úr landi

Forráðamenn lyfjafyrirtækisins Acta­vis til­kynntu í dag þá ákvörðun sína að færa fram­leiðslu lyfja­verk­smiðjunn­ar á Íslandi til útlanda, en fyrirtækið rekur nokkrar verksmiðjur erlendis. Um 300 manns vinna í verksmiðjunni. Þetta er sagt vera gert í hagræðing­ar­skyni.

Í tilkynningu frá Actavis segir að flutningurinn sé liður í því að tryggja sam­keppn­is­hæfni fyr­ir­tæk­is­ins á alþjóðavett­vangi. Eng­ar breyt­ing­ar séu fyr­ir­hugaðar á starf­sem­inni á næst­unni og muni þessi ákvörðun ekki hafa áhrif á störf hjá fram­leiðslu­ein­ing­unni á Íslandi að svo stöddu en fyrstu breyt­inga fari að gæta í árslok 2016 þegar fyrstu áfang­ar í flutn­ingi fram­leiðslunn­ar hefjist. Gert sé ráð fyr­ir að starf­semi verk­smiðjunn­ar á Íslandi verði lögð niður um mitt ár 2017. 

Um 300 starfsmenn hafa sinnt framleiðslunni hér á landi, en um 400 manns munu áfram starfa hjá Actavis á Íslandi á öðrum sviðum félagsins.

Önnur starf­semi á Íslandi verður óbreytt, að því er segir í tilkynningunni en hér­lend­is er fjöl­breytt alþjóðleg starf­semi, m.a. á sviði lyfjaþró­un­ar fyr­ir alþjóðamarkaði, skrán­ing­ar­svið sem ber ábyrgð á skrán­ing­um og viðhaldi markaðsleyfa út um all­an heim, alþjóðlegt gæðasvið og fjár­mála­svið, auk sölu- og markaðssviðs sem sinn­ir Íslands­markaði, sem og ýmis stoðsvið.

Þá eru hér á landi höfuðstöðvar Med­is, dótt­ur­fé­lags fyr­ir­tæk­is­ins, sem sel­ur lyf og lyfja­hug­vit Acta­vis til annarra lyfja­fyr­ir­tækja. Um það bil 300 starfs­menn eru hjá fram­leiðslu­ein­ing­unni á Íslandi en um það bil 400 starfs­menn í öðrum ein­ing­um fyr­ir­tæk­is­ins hér á landi.